;D
Myndir 2005 & eldri ♥
12.03.2009 16:00:30 / crazy_kid

Góðann daginn, góðir hálsar og aðrir líkamshlutar.

Sæææl.
Langt síðan síðast! :)
Ég er ekki búin að hafa mig í að blogga í aðeins of langann tíma, enda er MySpace að deyja út, hvað þá að bloggið mitt gangi eitthvað hérna!

Eeen allt i lagi, best að fara að rifja upp lífið í gleðinni herna í Borg Óttans á nýju ári!
Ég eyddi restinni af 2008 heima á Hólmavíkinni minni, sleppti held ég öllu djammi, annað en lang flestir þarna fyrir norðan.. En það var samt yndislegt :) Hafði voða lítið að gera, horfði á Pókémon, tók til, bakaði með mömmu minni og bara chill! Hah. Dagrún Ósk var mitt aðalyndi þar í jólafríinu, við skruppum meðal annars út í myndatökugöngutúr sem var ýkt yndislegur ... 15.desember, nýkomin heim.. 



Áramótin voru awesome! :) Ég keyrði suður aftur daginn fyrir gamlárs, og mætti í gamlárspartý, sem var awesome! Hah, þarf nú ekki mikið að segja frá því, en á nýárs ákváðum við Kristín að keyra á eina staðinn sem var opinn eða e'ð og kaupa okkur stóra feita pizzu!! Vá hvað það var frábært... Svo tók við hið venjulega líf aftur, eftir gott gamlárspartý.. Ég tók fullt af myndum miðað við ástand, ef ég á að segja sjálf frá! x) 2.janúar mættum við Kristín Anna síðan í smá teiti hjá Sveini með fullt af Perlufólki, og allt komið í eðlilegt horf annars.. Mætti í sund, einu sinni í janúar og var mikið dissuð fyrir að nenna ekki í annað skiptið!






Þann 10.janúar var svo haldið óvænt teiti fyrir Önnu Margréti Gunnarsdóttur, heima hjá Bigga, kærastanum hennar, og það var freekar gaman líka ;) Anna var svo yndislega mikið á rassgatinu að hún hefði getað dáið, og hún hefði líklega gert það á vissu augnabliki ef ég hefði verið fullari en ég var, því þessi snillingur ætlaði að standa upp með þvi að tosa í sjónvarpið, sem var næstum dottið a hana.. Hún hefði farið í mask!! En allavega, allir skemmtu ser vel í þessu partýi, við fórum í drykkjuleiki og þetta var svakalegt! Svo eftir teitið fórum ég og Birgir og Hadda á N1 - Hringbraut til að borða. Á leiðinni út sá ég þessa líka troðfullu bjórdós standandi á miðju bílaplaninu, og ég í háhæluðu skónum mínum VARÐ að sparka í þessa dós. En nei já einmitt, tekst mér ekki að hitta á eina hálkublettinn á helvítis planinu, og detta aaaalveg eins og fífl. Mm, mm, mm, góð saga!

 Anna sæta :* (sjá Höddu fyrir aftan xD)
 Siggi og Biggi eitursvalir ;)

  
 

Svo 17. janúar var Like afmælispartý á Dillon, Jón & Jón héldu upp á Jóns Gústa afmæli sem var 11.des , og Jóns Arnar afmæli sem var 1.janúar, saman með því að leigja Dillon, sem var awesome. Ég var edrú. Keyrandi útum allt, með fólk í bílnum sem nennti engann veginn að vera þar. Annars var ég mikið þetta kvöld bara með Höddu,  Bigga, Ingunni og Sigga, tja já og Ágústi í smá stund. :)


Jón & Jón.

Peace out, þetta er komið nóg í bili.
More to come later.
AgnesJ.


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.11.2008 16:19:14 / crazy_kid

Erfiðir dagar....

 Hvíldu í friði Þórir Árni Jónsson 
Þín verður sárt saknað, og ástvinir þínir og allir sem þekktu þig munu aldrei gleyma þér. Þú verður alltaf í minningunni um hressa strákinn með kímnigáfuna og prakkarabrosið.



Vona að nú sértu á betri stað, og að sál þín sé frjáls.
Blessuð sé minning þín.
Wilted rose


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.11.2008 11:30:27 / crazy_kid

Frozen gray tears, glanced on her cheek.

Góðann daginn. ?
Ert þú að lesa bloggið mitt ? Því ef svo er þá ætla ég að vara þig við. Þetta verður líklega mjööööög biturbloggfærsla. Þannig ekki lesa hana ef þú ert í góðu skapi. Nema að þú hafir gaman af biturleika annarra =D

Ééég þoli ekki suma hluti. Ég þoli t.d. ekki þegar fólk lætur eins og það viti best. Þoli ekki þegar maður má ekki hafa sína skoðun án þess að fólk fari að segja að mín skoðun sé röng. Þoli ekki þennann dönskuáfanga sem ég er í. DAN303 í MK. Asnalegustu verkefni sem ég gæti nokkurntímann ímyndað mér. Ég er hrædd. Geeeðveikt hrædd um að falla í þessum áfanga. Er líka í vandræðum með spænsku, og mögulega íslensku líka.

Hér er einvörðungu eitt verkefni í þessum áfanga sem mér hefur gengið vel með. Að skrifa örsögu. Og það var svo sannarlega ekki með hjálp kennarans. 

                         Agnes
                         Ud af flinkeskolen.

                    Pigen gik ud fra skolehuset.
                    En stor stor edderkop gik hurtigt imod hende.
                    Hun havde tår i sine øjne, og prøvede at mase den.
                    Hendes følelser overtog hendes hoved og krop.
                    Hun trampede og trampede. Trampede.
                    Stoppede pludselig. Edderkoppen løb bort. Fri.
                    Hun så over den lille by for den sidste gang.
                    Gik bort.

Fyrir þetta drasl fékk ég 9. Eina sem ég get verið stolt af í þessum áfanga.

Annars hefur ýmislegt skeð í lífinu síðan síðast. Ég hef bara aldrei fengið mig í að blogga um neitt. Ég hef hangt alveg svaka mikið á Facebook. (a) Örlítið á MySpace. En Facebook virðist vera að heltaka líf mitt. Breytingar í lífinu. Ég er ekki á föstu. Ég er flutt út úr Lynghaga 12. Ég bý ein í herbergi uppi í Breiðholti, inni í húsi hjá miðaldra konu og mömmu hennar. Ég hef svona mestpartinn í vetur verið að keyra Suzuki Sidekick sem bróðir minn á, en þar sem hann seldi hinn bílinn sinn í gær, þarf hann væntanlega súkkann til baka, og þá verð ég bíllaus. Sem þýðir að ég þarf að vakna u.þ.b klukkustund fyrr á morgnanna, allavega þangað til í Febrúar, þegar ég fæ pening og get keypt bílinn af honum.

Eeehhh... Jám.. Hólmavík í dag... Ég er að deyja úr þreytu, hausverk og hungri...
Vííí. Dönskutími búinn, ég farin.
Love, Agnes



1.11.2008.


» 7 hafa sagt sína skoðun

10.09.2008 12:30:24 / crazy_kid

soy chef! trabajo en un cocina!

Nú er ég ekki búin að blogga í ár og aldir! Hvaaað er að ske!
Ekkert frábært búið að ske nýlega:) Eða jú, margt frábært.
En ekkert sem mig langar neitt sérstaklega að segja frá !

Síðasta helgi. Ástfólkshelgi á Lynghaga 12? Helgin fór mjög mikið í að spila Tekken 5, það er, ég, Jón Örn og Friðgeir og Anna sætabeib horfði á! Geðveikt skemmtileg helgi, fór að hluta til bara í tjill og hitt í smá djemm.

Tekken 5!
Ég? Aaað brillera miðað við aðstæður.
Jón Örn? Alltaf að rústa öllum, eins og venjulega.
Friðgeir? Tjahh, átti sín móment:D

 
 

Aallavega. Langar sjúkt mikið á Skítamóral ball á Nasa á Laugardaginn!
Einhver geim !? 
ERT ÞÚ GEIM ?! MÆTTU Á SKÍMÓBALL MEÐ MÉR ;D
og ó já, á meðan ég man. ef það er aldurstakmark, þá máttu segja mér frá því;)

Photobucket

... Ég er byrjuð í skólanum, MK, enn á ný. Með flesta leiðinlegustu kennara sem hægt er að hafa [með áfangana sem ég er í] og ég er nokkuð viss um að ef ég væri í stærðfræði þá væri Guðrún Angantýsdóttir kennarinn minn! En ekki er nú með öllu illt að ekki boði nokkuð gott! Ingibjörg Karlsdóttir, Veðurfréttakonan, kennir mér Náttúrufræði, og stendur sig vel! Auk þess er María spænskukennari með húmor. Annars... Hinir sökka ;D
    Er í augnablikinu í íslenskutíma hjá Grimmhildi Grámann. Reyndar heitir hún ekki Grimmhildur Grámann. Hún heitir Þóranna. x) Sami skíturinn! ... Hún talar STÓRFURÐULEGA svo ekki sé meira sagt, þetta er meira að segja býsna vægt lýsingarorð. Eeen ekkert á við Guðrúnu Angantýsdóttur samt. Jafnast ekkert á við Guðrúnu Angantýsdóttur. En samt ....... stundum langar mig bara að drepa mig þegar hún er að tala. Shiiit. 

    Ég og Kristín Anna ætlum örugglega að byrja í kór & ég og Anna Margrét erum byrjaðar að mæta í ræktina aftur =D Félagslífið ætlar allavega ekki að deyja í vetur.

    Nú, eins og flestir vita þá eru allir meðlimir sambúðarinnar okkar í kjallaraíbúðinni í Lynghaga komnir með ástmann eða ástkonu. Og líkar vel ;D. Það versta er að ef við ættum að taka flugvél til þeirra, öll á sama tíma, færi ekkert okkar í sömu vélina!
En nú að öðru.

    Facebook er búið að heltaka líf mitt aftur, einnig bulletin æði á myspace og margt fleira. En Facebook, mest af öllu! Ég er búin að eyða miklum hluta af lífi mínu núna í haust í að hanga í Make Me A Celebrity á Mesmo TV , orðin Bigshot! Ég held að ég þurfi að fá mér líf:)

Ég samt held svona að ég sé farin að bulla óhemju mikið, eða bara einfaldlega löngu löngu hætt að tala í samhengi ! x) Enda of langt síðan ég bloggaði bloggi sem innihélt texta en ekki bara slideshow með klúðruðum textum, eða MyHeritage mynd! 
Þa er kominn tími til að hætta !:)

-Takk fyrir mig. Alltlæj bless :**
Agnes


» 9 hafa sagt sína skoðun

04.09.2008 10:25:46 / crazy_kid

Mér leiðist.


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.08.2008 19:45:46 / crazy_kid

Agnes, the slide maker!


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.07.2008 17:40:14 / crazy_kid

Góðann daginn!

Já sæææææææll!
Eins og flestum er kunnugt, þá flutti ég til Hólmavíkur aftur yfir sumarið, og hef verið hér í gleðinni alveg síðan í byrjun Júní !:) Ýmislegt hefur drifið á daga mína og ég var svona að spá, fyrst ég er veik í fyrsta skipti í laangann tíma, og hef ekkert við lífið að gera, að blogga! (Varúð, þetta verður líklegast mjöög langt blogg.)

5.5.2008, dó myndavélin mín! Canon Ixus i7! Pínu svekk, og ég er búin að vera að deyja síðan, og það er að hluta til þess vegna sem það verða ekki margar myndir í þessu bloggi. 

Annars, ég fór heim í byrjun Júní og byrjaði að vinna í frystihúsinu, þ.e. rækjuvinnslunni Hólmadrangi HF! Eftir það tók ég 2 mánudaga í frí og náði báðum bílprófunum, bóklega og verklega og er komin með bílpróf;D Iih, já og þær helgar var lítið um djamm og svoleiðis;) Maður missti samt ekki af miklu, heyrir ALLT slúður í rækjunni ..... Eníhú!

Sjómannadagurinn var sweeet!.. Ekki það að eg muni það, en ég held meira að segja að ég hafi sleppt djamminu þá helgi líka.. En dagurinn sjálfur var .. blautur! (VÁ HVAÐ MÉR LEIÐIST ÉG TRÚI EKKI AÐ ÉG SÉ AÐ BLOGGA).. ég og Jakob vorum líklegast eina fólkið á okkar aldri sem tókum þátt í sjóleikjunum... við plús Börkur beibí!



Sést ágætla á þessari mynd hversu gaman var hjá mér og Jakobi ;) Eftir talsverð öskur og "Stebbi, þetta er allt þér að kenna!!!" frá mér... þá tapaði ég ! Líka eftir að hanga á löppinni á bróður mínum í talsverðann tíma. Eftir þetta fór ég heim í sjóóðandi sturtu, og svo fór ég á eitthvað kökudæmi niðri í björgunarsveitarhúsi :)!

Eitthvað þess vert að segja frá eftir það ? Tjahh...

Síðasta helgi voru Hamingjudagar. Það var skrautleg helgi. 
Á föstudeginum var maður böstaður í hinu meinta "unglingasamkvæmi", þar sem ég ætlaði samt alls ekkert að vera þetta kvöld, heldur fórum við þangað til að ná í nokkra hluti. Við vorum öll (nema Birna Karen og Sigga Rún af því þær voru afskaplega klárar og földu sig undir rúmi!) látin blása og hringt til foreldra okkar. Gaman gaman! Svo þegar við vorum send heim þá labbaði ég af stað, een ég fór sko ekki heim. Ég held ég hafi verið á rúntinum all night long, og svona helminginn var mér sagt að ég væri að drepast. (sem mér fannst alls ekki meika sens) een það var ágætt. Svo þegar ég kom heim sofnaði ég víst á baðherbergisgólfinu (:
 Laugardagurinn, ég vaknaði klukkan 12 og fékk panik-kast. Ég átti nefnilega að mæta kl 10 á einhverja æfingu og mamma ætlaði að vekja mig, en þar sem ég hef þann einstaka hæfileika að muna aldrei að fólk tali við mig ef ég er hálfsofandi og fer að sofa strax aftur, þá hafði ég áhyggjur um að hafa rifið kjaft við mömmu mína! Þegar ég kom fram komst ég að því að æfingin varð aldrei, heldur fórum við bara og gerðum þetta asnalega dót. Krossarakeppnin var svakaleg, og ég hefði drepið fyrir að fá að taka þátt í henni. Eg var búin að eyða um 40 mínútum í að finna allt og vera tilbúin þegar við komumst að því að hjólið var bilað. Ég prófaði meira að segja hjólið hans Jóns Gústa og stuttu eftir að við komumst að þeirri niðurstöðu að ég réði ekki við það, bilaði það líka! Mjöög svekkjandi. Þannig ég var bara þarna í krossaragallanum með flögg í brautinni. Kristján Páll rústaði stærsta flokknum, Þórdís stóð sig með prýði en tapaði fyrir Friðrik (í flokknum sem ég hefði keppt í), og svo vann Benedikt yngsta flokkinn.
Svo var haldið á smáá rúnt minnir mig, er ekki alveg klár á því samt, og svona, hitta fólk og ná í dót út um allt. Svo fórum við Þórdís að gera okkur til og svona heima hjá mér, og fórum á rúntinn með Söru Rós sem var nýkomin með bílpróf ;* Það var úber gaman, og þegar við vorum búin að rúnta í svona hálftíma og fannst vera kominn tími á að fara á ballið skelltum við okkur þangað. Ég skemmti mér konunglega.. Alveg þangað til eftir ballið. En þetta var samt geðveikt gaman! Gott ball...;D
   Sjæsen.. Daginn eftir vaknaði ég kl 3 ein heima og skellti mér út í Sævang, settist að snæðingi með Silju, Jónsta og Ástu, en þar sem mér fannst ekkert vera að ske ákvað ég að skella mér bara heim aftur =) Silja kom með mér og Jón Gústi kom fljótlega á eftir okkur.. Eftir pínu rúnt með Silju fórum við heim og hún og Jón fóru eitthvert á meðan ég var bara heima, líklegast í tölvu. Það kvöld ætlaði ég snemma að sofa, en allt kom fyrir ekki! Rúntur með Þorbjörgu og Grétari, rúntur með Söru Rós og Sylvíu, og svo aftur rúntur með einhverju fólki sem ég man ekki 100% hverjir voru, ég man bara Sylvía, Jón Gústi í smástund og Grétar.. Líklegast Elín eða Þorbjörg líka..
   Mánudaginn var frí í vinnunni, við unnum hann af okkur þann 17.juni, snjööll! Ooog ég man ekkert hvað ég gerði þann dag, en það er líklegast minn endir á Hamingjudögum =) 

Ótla fátt búið að ske síðan, er núna veik heima, enda væri ég örugglega ekki að blogga annars... Ætlaði að vera geðveik hetja og mæta í vinnuna en meikaði það ekki í morgun... Bwööh.. Aumingji.is!

Allavega held eg að þetta sé fínt í bili !
Ef þið nenntuð að lesa þetta verðiði að eignast líf.
og já. takk líka fyrir að sýna mínu "lífi" áhuga;D
Agnes.

» 7 hafa sagt sína skoðun

28.05.2008 15:32:11 / crazy_kid

Erfitt líf?

Óneeei... En þar sem ég hef voðalega fátt við lífið mitt að gera ákvað ég að setja mynd af sætasta barni í heeiimiii í þetta stutta blogg mitt.


Diljá Hörn Hinriksdóttir er eitt gáfaðasta, skýrasta, fyndnasta og fallegasta barn sem ég þekki !, hún er 2ja ára... og hún spurði Árný "Áný.. Hvaj Kaupiju Svona Bjóstahaldaja?" !

Ógeðslega mikið krútt.. Elska hana <3
 
 


Mér leiddist.
AgnesJ.

» 7 hafa sagt sína skoðun

26.03.2008 11:16:53 / crazy_kid

Páskafríið búið, komin aftur í Borg Óttans;)

Jááá sæææll... Blog Central er svo dáið núna, allavega þessi hérna siða sjiiiii, það á enginn eftir að skoða hana aaftur ég er orðin svo myspace+facebook sjúúk!

En allavega er eg búin að skella mér á 3 árshátíðir í Mars og var það bara tær snilld;D .. Árshátíðaball ML var aawesome, árshátíðaball MK & fyrirpartý hjá Gunna var skrautlegt og skemmtilegt x].. Og svo árshátíð Perlunnar sem var bara eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert í langann langann langann tíma!..=D Það eru svoleiðis stundir sem maður missir sig ;).. Í dansiii og já !..

Jææja.. Er í sögu.. ;)
er komin með gamla Samsung símann aftur og er buin að vera i tölvuleik nánast allann tímann =) ... 

Tíminn er búinn, klára þetta seinna ;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

27.02.2008 00:05:59 / crazy_kid

Goo Goo Dolls <333

GAUR NEI! FKN... Oooh.. Allavega. Einmitt! Ég nenni ekki að blogga! Só æm djöst gonna pút som rísent fótós ... =D 


Hehe já , Kristín Anna mín xD Ég grét af hlátri þegar ég var að skoða þessar myndir aftur!


Heyrðu jáá... Árný á það til að taka myndir af manni í hressleikanum ;).. Ekki ný mynd samt.. Eníhúú!



HAHA . Ok, veit ekki alveg um hvað lífið snýst þarna! XD


Þarna þekki ég ykkur!! ;D .. Addi & amma uppí Steinadal að taka þátt í grettukeppni...


Mér leiðist rosalega. Ég vona að þið sýnið mér skilning!
-Agnes ... [Kannski kemur bráðlega myndbaaaand á bloggið;D]

» 1 hafa sagt sína skoðun

03.02.2008 00:27:26 / crazy_kid

Já sæll! Eigum við að ræða það eitthvað ?..

NP; Shadow Of The Day - Linkin Park <3

Halló (: Dálítið langt síðan ég bloggaði síðast, enda kemst éG ekki í bloggfílíng nema ég fari á Hólmavík.. Hversu undarlegt sem það er ! Heyrðu já.. Lítið búið að ske.. Nei ? ;) Fullt búið að ske! Nenni ekki að segja frá neinu.. Ætli ég geri það samt ekki.. Blogging it iis...!

HUB102!! Þ.e. hugsað um barn ! ;) Oooooj! Jæja, við fengum dúkku, með tölvuheila/gervigreind og wrehehhe, nenni ekki að skrifa þetta einusinni enn! Allavega, þá fékk ég 9,6 í einkunn og þar með 2 einingar, fyrir þennann áfanga og umönnun mína um helgina !;D.. reyndar fékk ég smá hjálp =] ... Frá svona 6 manneskjum x] Híhí. Gisti hjá Hönnu Clöru laugardagsnóttina síðustu, og það var awesome, hún með barn reyndar líka en okkar börn voru á næstum nkl sömu schedule svoooo..... Hún vaknaði bara við mitt barn og vissi að sitt var alveg að fara að grenja, þannig að hún fékk smá tíma til að vakna aðeins ..

Reyndar var laugardagurinn aðeins meira en ekki neitt, því ég fór með Árný, Hörpu, Hinna & Diljá í skautahöllina... MEÐ BARNIÐ! Hahahhaah.. Það var glatað xD .. Sem betur fer svaf barnið allann tímann, en sjæsen.. Litlu börnin dissuðu mig maður xD "Ojj ertu að leika þér með baby born!!"... xD Heheh, eg gretti mig bara framan i hann, og óójá , Diljá tók einn hring og hætti svo að skauta og Hinni fór hvorteðer ekkert á skauta þannig hann var þarna hjá mér að fylgjast með Diljá sem var ekki alveg að upplifa skemmtilegasta dag lífs síns! .. Byrjaði á því að hoppa og lenda á rassinum .. Kann ekki alveg að lýsa því en það virtist vera mjöög vont. Hehe, svo þegar hún jafnaði sig á því fór hún og hljóp á ruslatunnu.. Þaaað var pottþétt vont! Greyjið! Og á endanum þegar Harpa og Árný voru búnar að skauta [og Harpa btw búin að detta einusinni xD] þá datt hún niður svona þrep í áhorfendadæminu og lenti beint á hausnum, og fékk svaka kúlu :/ haah og Hörpu datt í hug að kæla ennið á henni með kókdós :']

Ojoj.. Svo fór ég til Hönnu Clöru um kvöldið eftir að hafa horft á Bruce Almighty með Árný, hehe, þegar ég kom þangað voru Óli Björn & Gunni krull þar, í tölvu ef ég man rétt. =D Haha, svo stuttu eftir það fór krakkinn minn að grenja og grenjaði eins og moongó ! ;] Allavega, svo kom Hadda Rakel, & þetta kvöld horfðum við á myndbönd síðan Hanna var lítil [ :'D krútt! ], spiiluðum Guitar Hero ... Var alveg að rústa þessu, og svo pöntuðum við Domino's og pössuðum börnin okkar ;D .. Svo gisti ég hjá Hönnu ^^ Geðveikt kvöld, eiginlega samt ekki hægt að segja frá því í smáatriðum ^^

...Og Dagrún hló!

 <--- hahah! fann þessa mynd og ákvað að setja hana vegna þess hvað ég er óvenjulega tönuð /oog perraleg!xD/ á henni ;].. Minningar síðan í byrjun Ágúst, þegar ég var á Hvammstanga að læra að keyra ;D Ég, Magga, Sölvi & Aron Vignir, a goðri stund uti um 12 leytið r some hjá bryggjunni á Hvt. á einhverju random hjóli sem við fundum !;] Aaawesome!

Einmitt! Núna er ég heima á Hólmavík, eins og þú ættir kannski að vera búinn að átta þig á fyrst ég er nú að blogga svona svaaakalega!! Er reyndar úti á Kirkjubóli í augnablikinu, anywho. :] Kom á föstudaginn með sambýlingum mínum ^^, hress ferð það.. Best í heimi að koma heim <3 Mamma & pabbi líka ekkert lítið glöð að fa mig.. Sjiitt svo verð eg herna fram a þriðjudaginn i næstu viku og það verður vonandi bra awesome lika ^^ Haha =D Btw geðveikt að hitta Jakob sem er ennþá jafn mikið Guitar Hero nörd og Jón Gústa sem er ekki með neinn lit í hárinu sínu ;D Bwaha! Sylvía er í Njarðvík, en ég vonast til að hitta hana á mrg til hamingju með að hafa verið í 2 sæti í landshlutakeppninni btw elskan=D betri árangur en ég náði nokkurntimann :* Og vonast lika til að hitta Silju mína ;*.. Búin að hitta Dagrúnu og Jón sem sagði að það væri ekki sjón að sjá hárið á mér svona dökkt xD

Jáááá!!! Ég er btw komin með dökkt hár :D
En ég er samt gg hætt að blogga þetta blogg það er orðið aðeins of fkn langt :']

-Agnes Jónsdóttir ;**

» 8 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 01:58:42 / crazy_kid

In case I don't see ya', good afternoon, good evening and good night!


þessi ofurkrútt! ég & sara.
hef ekkert að gera.
ákvað bara að posta þessa mynd því hún er svo glowing & jolly. samt sem áður alveg 2ja ára gömul mynd r some . ^^
anywho, það er ekkert í gangi og ég er farin að sofa.
góða nótt:*

» 3 hafa sagt sína skoðun

14.01.2008 00:26:15 / crazy_kid

Stjörnuspá 2008?

nuverandi skap;; gæti verid verra :]
now playing;; Ladylike - Storm Large

Já hæ.. Ég fann hérna stjörnuspá fyrir árið 2008 í Séð & Heyrt og ég las þetta og árið á að vera rosa fínt fyrir alla nema mig, sýnist mér ! =) Ég ætla að skrifa stjörnuspána niður, og þið dæmið svo hvað þið haldið að þetta eigi eftir að standast!

Vatnsberi 21.janúar-18.febrúar.
   Á árinu 2008 þarf Vatnsberinn að læra að vera ekki mjög áberandi, heldur fremur að halda sig til baka. Það verður mikið umrót í tilfinningalífi Vatnsberans á árinu. Hann verður meira einn og ekki eins hrifinn og áður af því að vera á almannafæri, í stórum veislum eða vinahópnum. Hann mun hugsa meira um sál sína og eigin getu. Margir munu sökkva sér í bókmenntir á árinu og verða fastagestir á bókasöfnum og í bókabúðum landsins. Vatnsberar munu frekar finna sig innan um bækurnar heldur en í stórum, hávaðasömum vinahóp. Árið 2008 verður gott ár fyrir Vatnsberann til að fara í naflaskoðun. Líkur eru á því að Vatnsberinn þurfi á sérfræðiaðstoð að halda, en það mun hjálpa honum að finna sinn innri mann og getu sína og hjálpa honum að losna við minnimáttarkennd.
   Á árinu 2008 verða horfur góðar fyrir atvinnurekendur sem fæddir eru í þessu stjörnumerki varðandi langtímafjárfestingar. Vatnsberanum er ráðlagt að eltast ekki við skammtímagróða heldur finna sér farveg og stöðugleika varðandi fjárfestingar sínar. Vatnsberinn þarf ekki að óttast íhaldssemi og ber honum að vara sig á áhættufjárfestingum. Ef hann fylgir því þá getur hann margfaldað tekjur sínar í lok ársins. Fyrstu mánuði ársins verður Vatnsberinn sérstaklega heppinn hvað varðar ný verkefni sem hann tekur að sér. Hvað fjármál varðar þá verður árið mjög gott og hagnaður verður af starfsemi hans. Sumir munu ná því á árinu að greiða upp allar skuldir sínar, sem er mjög hagstætt vegna hárra vaxta. Vatnsberinn þarf þó að hafa fyrir hlutunum á komandi ári. Það þýðir ekki að sitja með hendur í skauti. Árið 2008 verður farsælt fyrir þá sem starfa við einhvers konar þjónustu, t.d. fasteignasölu og rekstrarráðgjöf.
   Hjá Vatnsberum sem starfa sem launþegar í fjármálageiranum eru miklir möguleikar á árinu til að öðlast stöðuhækkun. Þeir verða þó að leggja sig alla fram og eyða mikilli orku í starf sitt til að ná þessum markmiðum. Þessu fylgja háar tekjur en á kostnað frístunda og fjölskyldulífs. Vatnsberinn sem er í ábyrgðarstöðu á vegum hins opinbera mun ekki vera eins heppinn á árinu eins og þeir sem vinna á almenna vinnumarkaðnum, þar sem líkur eru á samdrætti og breytingum varðandi starfsumhverfi. Sumir gætu misst stöðu sína og það gæti tekið þá langan að finna nýtt starf. Margir gætu brotnað saman við þessar breytingar. Þetta mun ekki bara virka neikvætt á Vatnsberann heldur einnig fjölskyldu hans. Jafnvel eru líkur á skilnaði á árinu.
   Vatnsberinn þarf að huga meira að fjölskyldu sinni þetta árið en hann hefur gert áður og hann þarf að taka til í sínum málum og ákveða hvað hann vill í framtíðinni. Hann má ekki taka kynlífsiðkun sína of létt, því það gæti allt farið úr böndum hvað varðar fjölskyldumálin. Vatnsberinn getur gert ýmsar kynlífstilraunir heima hjá sér, hann þarf ekki að leita langt yfir skammt. Með því gæti komið krydd í hjónalífið og sambandið gæti orðið traustara. Á öðrum hluta ársins munu sumir Vatnsberar leita að lausnum varðandi hjónaband sitt, þar sem það stendur mjög tæpt. Hjá einhverjum mun þetta enda með hjónaskilnaði. En aðrir munu ná að vinna sig út úr þessum erfiðleikum og allt verður gott áður en árið verður á enda.
   Hjá ólofuðum Vatnsberum verður fyrsti hluti ársins sérstaklega hagstæður til að finna hina einu sönnu ást og þróa samband. Mikið verður um stefnumót, skemmtanir og aðrar uppákomur. Ekki er ólíklegt að trúlofun láti á sér kræla hjá þeim ógiftu. Kannski finnur Vatnsberinn loksins hina einu sönnu ást og nýr meðlimur mun fæðast í fjölskyldunni eftir nokkra mánuði. Þetta mun færa honum mikla gleði og hamingju. Það gæti farið svo að hann mundi fara í verulegar framkvæmdir á húsnæði eða fjárfesti í nýju, en þó ekki fyrr en árið 2009. Sumir Vatnsberar munu jafnvel láta gamlan draum rætast og líklegt er að þeir fari mikið í ferðalög, jafnt innanlands sem utan.



Lag vikunnar;; Hear You Me - Jimmy Eat World <3
That was it for tonight! .. Fór á bíómyndina The Mist í gær, og hún var mjööög góð, mæli eindregið með henni =D

..... Ég er sorgleg 



....Anywho! Bless :**


» 9 hafa sagt sína skoðun

04.01.2008 04:31:14 / crazy_kid

..Back To Real Life..

Jæææja;) Þá er maður kominn aftur suður í Borg Óttans.. Eftir langt, kósí jólafrí =D
ég samt nenni svo ekki að skrifa neitt af viti..
so.. Hólmavík Er Best , vann lagasamkeppni fyrir Hamingjudaga [jújú fólk gat ekki fundið meira gay nafn á bæjarhátíð;)] eftir Arnar Snæberg Jónsson ;)

Í rokinu í Grindavík er alltaf svoldið kalt
Í sjoppunni á Kópasker'er ekki til neitt malt
Á Selfossi og Hveragerði jarðskorpan er þunn
Og sundlaugin á Ísafirði, hún er alltof grunn.

Ég ráfaði um Raufarhöfn í rokinu um hríð
Í Reykjavík er ofbeldi og innbrot eru tíð
Á vertíð úti í Vestmannaeyjum fann það fyrir rest
Að búa heim'á Hólmavík það væri alltaf best

Hólmavík, Hólmavík, hamingja og rómantík.
Hólmavík, já, Hólmavík, hún er engu öðru lík.

Á Húsavík þeir bráðum munu álver hafa byggt,
Í Eyjafirði'er alltaf svoldil kúadellulykt.
Hvert sem ég mun flakka, já hvert sem ég nú fer
Mun hamingjan á Hólmavík búa'í hjarta mér

Hólmavík, Hólmavík, hamingja og rómantík.
Hólmavík, já, Hólmavík, hún er engu öðru lík.

Nú safnast allir saman og hamingjan við völd,
Og endalaust við skemmtum okkur alveg fram á kvöld,
Það rignir reyndar aðeins, og sólin ekki sést
Það skiptir ekki máli ÞVÍ HÓLMAVÍK ER BEST!

Hólmavík, Hólmavík, hamingja og rómantík.
Hólmavík, já, Hólmavík, hún er engu öðru lík.
Hólmavík, Hólmavík, hamingja og rómantík.
Hólmavík, já, Hólmavík, hún er engu öðru lík.
 O.s.frv! ;D


....Til hamingju með titilinn Íþróttamaður Ársins, Guðjón =D

» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13
Textabox
Put Your Arms Around Me, What You Feel Is What You Are And What You Are Is Beautiful